Hækkun gjalda hjá OR

Gjaldskrár Orkuveitu Reykjavíkur hafa hækkað nokkuð á síðustu mánuðum. Vatns- og fráveitugjöld hækkuðu um áramót, auk þess sem gjaldskrár fyrir hita og rafmagn hafa hækkað. Veitugjöldin ein hafa hækkað um rúm 18% síðustu 12 mánuði.
Tæplega fimmtíu þúsund heimili og fyrirtæki hafa á síðustu dögum fengið álagningarseðil frá Orkuveitu Reykjavíkur inn um lúguna. Seðilinn þetta árið hljóðar upp á nokkuð hærri gjöld en í fyrra en veituþjónustan - vatnið og frárennslið frá heimilum og fyrirtækjum, hækkaði um tæp ellefu prósent (10,69%) um áramót.
Síðan Orkuveitan tók við innheimtu vatns- og fráveitugjalda í ársbyrjun 2011, hafa veitugjöldin hækkað verulega. Fyrsta maí í fyrra hækkuðu fráveitugjöldin um 45% og nú hækka þau í samræmi við byggingavísitölu um ellefu prósent eins og áður segir.
En hvað þýða þessar hækkanir í krónum og aurum. Tökum dæmi af 100 fermetra íbúð í Reykjavík. Í fyrra greiddi eigandi þessarar íbúðar rúmar 55 þúsund krónur fyrir fráveitu og vatn frá Orkuveitunni. Í ár greiðir hann rúmum tíu þúsund krónum meira fyrir sömu þjónustu eða rétt rúmar sextíu og fimm þúsund krónur. Hækkunin milli ára, þegar tekið er tillit til hækkunar í maí og aftur um áramót, nemur því rúmum átján prósentum.
En þetta er ekki eina þjónusta Orkuveitunar sem hækkaði um áramót.
Raforkudreifing hækkaði einnig. Það þýðir að rafmagnsreikningur heimilisins hækkar að jafnaði um fimm prósent milli ára. Þá hækkaði gjaldskrá hitaveitunnar um fimm komma þrjú prósent um áramót en hún hafði áður hækkað um átta prósent síðasta vor.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







