Gylfi með stoðsendingu
Fyrst birt: 25.07.2012 10:12, Síðast uppfært: 25.07.2012 10:12

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í Tottenham gerðu í gærkvöld 1-1 jafntefli í æfingaleik gegn Los Angeles Galaxy í Bandaríkjunum.
Gylfi var í byrjunarliðinu og lék í 75 mínútur eða þangað til honum var skipt út af. Á sautjándu mínútu fékk hann boltann fyrir utan teig og átti fyrirgjöf á Gareth Bale sem skallaði boltann í netið. Heimamenn jöfnuðu metin tólf mínútum síðar. Þá átti Gylfi gott færi í síðari hálfleik en skaut framhjá markinu.
David Beckham spilaði ekki fyrir Galaxy í gær. Næsti leikur Tottenham verður gegn Liverpool þann 28. júlí og þá mætir Gylfi sínum gamla knattspyrnustjóra, Brendan Rodgers.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














