Gunnar mætti til vinnu í morgun

Gunnar Andersen.

Fundur efnhags- og viðskiptanefndar stendur enn yfir og þar er einnig til umræðu boðuð uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Fundurinn hófst klukkan níu og er uppsögnin fimmta mál á dagskrá fundarins.

Gunnar Andersen fékk bréf á föstudag þar sem honum var tilkynnt að það ætti segja honum upp störfum. Fékk hann frest til dagsins í dag til að skila inn andmælum. Ástæðan er fyrrnefnd álitsgerð en þar kemur meðal annars fram að Gunnar hafi gefið villandi og ófullnægjandi upplýsingar við fyrirspurn FME árið 2001 um erlenda starfsemi Landsbankans. Jafnframt er tekið fram að ekkert bendi til þess að Gunnar hafi brotið lög.

Félag forstöðumanna ríkisstofnanna sagði í gær ólíðandi hve stuttan fyrirvara Gunnar fékk til að andmæla uppsögninni en Gunnar mun skila andmælum síðdegis. Hann mætti til vinnu í morgun og samkvæmt heimildum fréttastofu hélt hann fund með starfsmönnum þar sem hann fór yfir stöðuna og sína hlið á málinu.

Stjórnin mun svo fara yfir andmæli Gunnars og taka ákvörðun um hvort uppsögnin standi eða ekki í framhaldi af því.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku