Gunnar Birgisson ekki í bæjarráði

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi og Rannveig Ásgeirsdóttir, formaður bæjarráðs.
Rannveig Ásgeirsdóttir oddviti /-listans í Kópavogi segir að listinn hafi gert þá kröfu að Gunnar I Birgisson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins yrði ekki í framvarðasveit í nýju meirihlutasamstafi Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Y-lista Kópavogsbúa.
Gunnar og Ómar Stefánsson leiðtogi Framsóknarmanna sæta báðir ákæru vegna málefna Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. Rannveig var gestur Morgunútvarpsins. Hún segir að allir bæjarfulltrúar sem nú sitji hafi þegar sagt að Gunnar og Ómar taki ábyrgð á því sjálfir. Menn ætli ekki að dæma þá fyrirfram. Y-listinn hafi gert kröfu um það að Gunnar sæti ekki í bæjarráði. Þar sitji oddvitar listannna. Rannveig segir að Y-listinn hafi sett það á oddinn að Gunnar yrði ekki í bæjarráði eða framvarðarsveitinni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







