Gullæði grípur Dani

Danir selja nú fjölskyldudjásnin sín sem aldrei fyrr því heimsmarkaðsverð á gulli hefur hækkað mikið. Í fyrra seldu Danir gulltennur og skartgripi í ellefu hundruð gullstangir. Þær voru seldar fyrir sjö hundruð milljónir danskra króna eða rúma fimmtán milljarða íslenskra króna.

Gullheildsalinn Sequoyah í Kaupmannahöfn keypti skart fyrir sex milljónir danskra króna á einum degi í vikunni. Mest armbönd, úr og skyrtuhnappa. Gullið er unnið til, síðan er það brætt og úr því er gerð stöng sem hægt er að selja fyrir jafnvirði tíu milljóna íslenskra króna.

Stangirnar eru seldar til stórfyrirtækja í Sviss sem versla með gull. Þau selja stangirnar til fyrirtækja sem búa til nýja skartgripi úr þeim. Gull var brætt í sjö hundruð og tíu stangir árið 2010 og 400 fleiri í fyrra en meira fæst nú fyrir gullið en áður.

Grammið kostaði 78 krónur danskar fyrir tíu árum en kostar 316 danskar krónur í dag.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Evrópa, Erlent, Mannlíf

Tilkynna um bilaða upptöku