GSÍ heldur forkeppni EM

Flokkar: Golf, Íþróttir


  • Prenta
  • Senda frétt

Átta Evrópuþjóðir mætast í forkeppni fyrir Evrópumót karlalandsliða í golfi á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði dagana 12.-14. júlí.

Þjóðirnar átta eru Belgía, England, Holland, Portúgal, Rússland, Serbía, Slóvakía og Ísland og leika þær um þrjú laus sæti á Evrópumótinu sem haldið verður í Danmörku á næsta ári.

Kylfingarnir Andri Þór Björnsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús úr GR, Kristján Þór Einarsson úr GK, Guðjón Henning Hilmarsson úr GKG og Ólafur Björn Loftsson úr NK skipa lið Íslands á mótinu.

Þetta er eitt stærsta mót sem Golfsamband Íslands hefur staðið fyrir en leikinn verður höggleikur þar sem fimm bestu skor af sex gilda hjá hverju liði á hverjum hring og verða hringirnir þrír talsins.

Heimasíða mótsins

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku