Grikkir samþykkja áætlunina

Eftir heitar umræður á gríska þinginu um hvort samþykkja ætti aðgerðir sem Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn settu fyrir neyðarláni, gengu þingmenn til atkvæðagreiðslu upp úr klukkan tíu í kvöld, meðan Aþena logaði í mótmælum. Niðurstaðan er sú að þeir samþykkja áætlunina.

Niðurstaðan þýðir að segja þarf upp 15.000 opinberum starfsmönnum, lækka lágmarkslaun um fimmtung og rýmka löggjöf á vinnumarkaði.

Ráðherrar hafa sagt að fáist þetta ekki samþykkt blasi við alger upplausn og miklu verri kjör fyrir Grikki.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku