Grammy verðlaunahátíðinni breytt

Grammy verðlaunahátíðin sem fram fer í kvöld og átti að verða mikil gleði- og uppskeruhátíð að venju, verður með breyttu sniði vegna fráfalls Whitney Houston. Þrátt fyrir að söngkonan hafi látist einungis rúmum sólarhring áður en hátíðin hefst hefur dagskráin verið endurskipulögð á síðustu stundu.

Þannig mun söngkonan Jennifer Hudson flytja söngatriði til heiðurs Whitney Houston og fyrrverandi eiginmaður hennar, Bobby Brown, hefur gert sér ferð til Los Angeles til að koma fram á hátíðinni.

Hátíðin í kvöld átti að snúast að miklu leyti um söngkonuna Adele og velgengni hennar á árinu, einnig ætluðu Beach Boys að koma saman og taka lagið með Maroon 5 og Foster the People. Nú er hins vegar ekki ljóst hvaða atriði falla niður vegna breytinganna og mun dauði Houston án efa varpa skugga á spila- og samkvæmisgleði tónlistarmannanna á hátíðinni.

Houston var stödd í Los Angeles þessa helgi, einmitt vegna Grammy verðlaunanna, líkt og flestar helstu tónlistarstjörnur Bandaríkjanna.

Clive Davis, maðurinn sem uppgötvaði Houston og hefur haldið utan um feril hennar æ síðan, hugðist halda sitt árlega upphitunarsamkvæmi fyrir Grammy verðlaunin á Beverly Hilton hótelinu í gærkvöldi og ætlaði Houston meðal annars að stíga þar á stokk.

En í stað gleði og glaums mættu stjörnurnar til að votta Davis samúð sína og hugga hverja aðra, eftir að hafa fengið fregnir af því að Houston hefði fundist látin á hótelinu nokkrum klukkustundum áður.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Mannlíf

Tilkynna um bilaða upptöku