Göngulag segir fyrir um elliglöp

Mynd: Shutterstock.

Hversu hratt fólk gengur getur sagt til um hversu líklegt sé að það muni þjást af elliglöpum síðar á ævinni, að sögn bandarískra vísindamanna. Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá þessu.

Vísindamennirnir segja líka að tengja megi gripmátt fólks á miðjum aldri við líkurnar á heilablóðfalli. Frekari rannsóknir þurfi þó til að skýra þetta. Því hefur áður verið haldið fram að tengsl séu milli heilsuleysis og þess að fólki gangi hægt. Í rannsókn sem var birt í læknaritinu British Medical Journal árið 2009 kom fram að sterkt samband væri á milli þess að fólk gengi hægt annars vegar og hjartaáfalls og annarra heilsufarsvandamála hins vegar. Í annarri rannsókn í tímariti Bandaríska læknafélagsins komu fram tengsl milli þess að fólk eldra en 65 ára gengi hratt annars vegar og lengra lífs hins vegar. Niðurstöðurnar hafa enn ekki verið birtar í ritrýndu vísindariti.

Hér má lesa frétt BBC.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku