Góður skriður á aðildarviðræðum

Össur Skarphéðinsson á fundi með fréttamönnum í Brussel í dag. Mynd: ESB
Þrír nýir samningskaflar hafa verið opnaðir í viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Fimmta ríkjaráðstefna Íslands og Evrópusambandsins fór fram í morgun. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segist vona að hægt verði að hefja viðræður um landbúnað og sjávarútveg á næstu mánuðum.
Samningskaflarnir sem voru opnaðir á ríkjaráðstefnunni í Brussel í dag snúa að félags- og vinnumálum, flutningastarfsemi og eftirliti með opinberum fjármálum.
Tíu kaflar búnir
Aðildarsamningar ESB-ríkja skiptast í þrjátíu og fimm kafla. Alls hafa átjan kaflar verið opnaðir í viðræðunum um aðild Íslands, og er þegar lokið viðræðum um tíu kafla.
Aðildarviðræður lands hafa ekki gengið hraðar síðan 2006, sagði Stefan Fühle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, á blaðamannafundi í lok ráðstefnunnar.
Líklega mun ekki þurfa miklar viðræður um kaflana sem opnaðir voru í dag. Félags- og vinnumál, og flutningastarfsemi, falla að mestu undir EES-samninginn.
Erfiðistu kaflarnir eftir
Fjárhagslegt eftirlit á Íslandi er þegar vel aðlagað reglum Evrópusambandsins, kom fram í máli Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra á ríkjaráðstefnunni.
Össur sagðist ennfremur vonast til þess að viðræður um erfiðustu kafla samninganna gætu hafist á næstu vikum og mánuðum. Vísaði Össur þar til kaflanna um efnahags- og peningamál, landbúnað og dreifbýlisþróun, og sjávarútveg. Samningaviðræður um sjávarútveginn yrðu erfiðar og því væri best að hefjast handa sem fyrst.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













