Steinseljupestó



  • Prenta
  • Senda frétt

Hægt er að gera fínustu pestó eða kryddmauk úr ýmsu grænu úr garðinum. Klettasalat, steinselja, kóríander er meðal þess sem getur verið uppistaða í pestói. Frægasta kryddmaukið er án efa pestóið með fersku basilíkunni, furuhnetum og parmesanostinum.

Við leyfum okkur að fara nokkuð frjálslega með samsetningar á kryddum og notum oft annan ost en parmesan, t.d. fetaost eða bragðsterkan steyptan ost í staðinn. Það er líka hægt að sleppa ostinum en bæta þess í stað örlitlu salti saman við maukið. Slíkt kryddmauk er hægt að nota með ýmsum hætti, t.d. með pasta, austurlenskum núðlum, með góðu brauði, í samlokur, í súpuna, í pottréttinn og með góðum ostum.
Kryddmaukið geymist í allt að tvær vikur í kæli í vel lokuðum krukkum. Einnig er hægt að frysta maukið, t.d. í klakaboxi, og geyma það í allt að sex mánuði. Það er tilvalið að varðveita kryddjurtauppskeruna með þessum hætti, nota eftir þörfum fram eftir vetri og njóta kryddilms frá liðnu sumri langt fram á þorrann.

Hér er uppskrift af kraftmiklu og bragðgóðu pestó sem getur auðveldlega komið í staðinn fyrir þetta venjulega basilíkupestó.
Ef steinseljuuppskeran er mikil er tilvalið að nýta hluta af henni í pestógerð og frysta til að nota síðar. Gott t.d. út á kartöflur.

100 g sléttblaða steinselja, án stilka
75 g valhnetur, ristaðar á þurri pönnu
¼ tsk. salt
2 hvítlauksrif, kramin
250 ml ljós ólífuolía
2 tsk. hunang
1 msk. sítrónusafi
2 tsk. sítrónubörkur, fínrifinn
150 g fetaostur í olíu
svartur pipar

Maukið steinselju, valhnetur, salt, hvítlauk, ólífuolíu, hunang, sítrónusafa og -börk saman í matvinnsluvél þar til blandan er slétt. Bætið síðan ostinum út í og piprið eftir smekk.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku