Góð stemning á Bræðslunni

Valgeir Guðjónsson og Fjallabræður voru meðal þeirra sem komu fram á Bræðslunni í gærkvöld. Myndina tók Guðný S. Ólafsdóttir á æfingu fyrr um daginn.


  • Prenta
  • Senda frétt

Mikil stemning er á Bræðslunni á Borgarfirði eystra en tónleikunum var útvarpað í beinni útsendingu á Rás 2 í gærkvöld. Að sögn Matthíasar Már Magnússonar sem hafði veg og vanda að útsendingunni söng hver einasti maður í húsinu frá 7:30 til miðnættis þegar tónleikunum lauk.

Listamennirnir sem komu fram á tónleikunum voru Mugison, Valgeir Guðjónsson, Fjallabræður, The Lovely Lion og Contalgen Funeral og stóðu allir fyrir sínu að sögn Matthíasar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku