Glæpasamtök græða á netsvindli

Khoo Boon Hui, yfirmaður Interpol. Mynd:Nordic Photos/AFP
Skipulögð glæpasamtök standa á bakvið flest svik og svindl á netinu og er skaðinn af slíkri iðju meiri en samanlagður kostnaður af baráttunni gegn smygli og sölu á heróíni, kókaíni og kannabisefnum. Þetta segir Khoo Boon Hui, yfirmaður alþjóðalögreglunnar Interpol.
Khoo ávarpaði ráðstefnu Interpol í Tel Aviv í Ísrael í gær og vitnaði í skýrslu bresku lögreglunnar þar sem segir að skipulögð glæpasamtök standi á bakvið 80 prósent glæpa í netheimum. Glæpasamtök telji þetta ábatasamari iðju en ýmsa aðra glæpi, eins og smygl og sölu á fíkniefnum. Kostnaðurinn af netglæpum hefði numið jafnvirði rúmlega 120 milljarða króna í Evrópu á síðasta ári, þar á meðal af völdum ólöglegrar veðlánastarfsemi, banka- og greiðslukortasvika.
Khoo sagði að bandarískir bankar hefðu tapað 900 milljónum dollara, jafnvirði um 113 milljarða króna, vegna hefðbundinna glæpa og svika á síðasta ári, en tjón þeirra af skipulögðum netsvikum hefði numið 12 milljörðum dollara, jafnvirði um 1.500 milljarða króna. Khoo varaði við hættu á árásum á öryggiskerfi ríkja og sagði að svokallaður Anonymous-hópur tölvuþrjóta hefði meðal annars ráðist á tölvukerfi Interpol.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













