Glæpadómstóllinn fjalli um Sýrland

Navi Pillay, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna. Mynd:AFP

Sækja ber til saka fyrir Alþjóða glæpadómstólnum í Haag þá sýrlenska embættismenn sem gerst hafa sekir um glæpi gegn mannkyni eða hafa fyrirskipað slíka glæpi. Þetta sagði Robert Colville, talsmaður Navi Pillay, mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna, í dag.

Hann sagði að það yrðu skýr skilaboð til þeirra sem stjórnuðu aðgerðum. Pillay ætlar að ávarpa allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna á mánudag og sagði Colville að til greina kæmi að leggja þar fram ályktunartillögu um Sýrland. Í fyrradag hvatti Pillay til alþjóðlegra aðgerða til verndar almennum borgurum í Sýrlandi og kvaðst slegin yfir árásum sýrlenska hersins á íbúðahverfi í borginni Homs.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Asía, Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku