Gingrich á undir högg að sækja

Gingrich og Romney. Barátta þeirra í Flórída er grimmari en ætla mætti af þessari mynd.

Newt Gingrich, fyrrverandi forseti Fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, rær lífróður í kosningabaráttunni fyrir prófkjör repúblikana í Flórída á þriðjudag. Þrjár kannanir í fyrradag, og tvær í gær, benda til þess að hann muni bíða ósigur fyrir Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóra Massachusetts.

Munurinn verði allt að níu prósentustigum. Romney þótti standa sig betur en Gingrich í kappræðum repúblikana í ríkinu í fyrradag.

Gingrich bregst við mótlætinu með æ harðari árásum á Romney í sjónvarpsauglýsingum. Í þeirri síðustu spyr þulur: Hvers konar maður lýgur, blekkir og svíkur til þess eins að ná kjöri? Og svarar: Þess háttar maður er Mitt Romney.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku