Giftist syni George Harrison

Dhani Harrison hefur væntanlega verið lukkulegur þegar hann kvæntist hinni íslensku Sólveigu Káradóttur.
Íslenska fyrirsætan Sólveig Káradóttir gekk að eiga Dhani Harrison, son George Harrison, um helgina. Mikil leynd hvíldi yfir athöfninni sem fór fram á heimili Harrison-fjölskyldunnar, Friar Park, í Henley. Stella McCartney hannaði brúðarkjól Sólveigar en hún er dóttir Paul McCartney.
Frá þessu er greint á vef héraðsfréttablaðsins Henley Standard. Þar kemur jafnframt fram að Sólveig og Dhani hafi trúlofast í janúar en þau búa í Los Angeles þar sem Dhani starfar sem tónlistamaður. Sólveig er menntaður sálfræðingur en hún er dóttir Kára Stefánssonar. Meðal gesta í brúðkaupinu voru fyrrum liðsmenn Bítlanna, þeir Paul McCartney og Ringo Starr, auk þess sem stórleikararnir Tom Hanks og Clive Owen heiðruðu brúðhjónin.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














