Giants unnu Ofurskálina

Eli Manning, leikstjórnandi Giants var valinn leikmaður Ofurskálarinnar 2012.

New York Giants sigruðu New England Patriots í úrslitaleik ameríska fótboltans í kvöld. Leiknum lauk með 21 stigi Giants gegn 17 stigum Patriots.

Patriots voru með yfirhöndina mestan hluta leiksins og náðu mest 8 stiga forystu. Þeir gáfu hinsvegar eftir þegar líða fór á þriðja leikhluta og það dugði Giants til að tryggja sér sigurinn.

Eli Manning, leikstjórnandi Giants var valinn maður leiksins. Hann átti frábæra sendingu á Mario Manningham undir lokin sem kom þeim aftur inn í leikinn en 75% sendinga hans í leiknum heppnuðust.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Íþróttir

Tilkynna um bilaða upptöku