Kvennó hefur titilvörnina í kvöld!

Kvennaskólinn teflir fram sama liði og sigraði keppnina í fyrra
Þrjár viðureignir fara fram í kvöld á Rás 2 en keppni Kvennaskólans gegn Hraðbraut verður að teljast sú athyglisverðasta, þar sem fyrrnefnda liðið er núverandi handhafi Hljóðnemans.
Laufey Haraldsdóttir, liðsmaður Kvennó og siguvegari síðasta árs, var í viðtali á dögunum við Monitor. „Við byrjum kannski keppnina öruggari með okkur heldur en í fyrra en við viljum samt heldur ekki vera að ofmetnast“ sagði hún en hvað finnst henni um breytt keppnisfyrirkomulag? „Breytingarnar á spurningaröðinni eru kannski pínu óþægilegar þegar maður er vanur hinu en auðvitað tökum við hlutunum bara eins og þeir koma til okkar." Laufey segir jafnframt að flestir nemendur Kvennaskólans geri kröfu um að þau verji titilinn. „Flestir í skólanum eru harðir á því að við verðum að taka þetta annað árið í röð og auðvitað ætlar maður alltaf að vinna.“
Dagskrá kvöldsins er svohljóðandi:
19:30 Kvennaskólinn í Reykjavík - Menntaskólinn Hraðbraut
20:00 Fjölbrautaskóli Vesturlands - Verkmenntaskóli Austurlands
20:30 Fjölbrautaskóli Suðurlands - Fjölbrautaskóli Snæfellinga
Stýrihópur keppninnar vill benda á Fésbókarsíðuna en þar birtast myndir ásamt fréttum og skemmtilegum fróðleik á hverjum degi:
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
Gettu beturTilkynna um bilaða upptöku







