Hógværar stórstjörnur í Hofi

Það er óhætt að segja að blásið sé til veislu í fyrsta þætti Gesta út um allt á árinu.
Gestir þáttarins eru stórstjörnurnar Andrea Gylfadóttir og Valdimar Guðmundsson en þau eiga það sameiginlegt að vera hógvær, hæfileikarík og skemmtileg auk þess sem bæði hafa sungið sig inn í hjörtu landsmanna. Andreu þarf ekki að kynna enda verið áberandi í tónlistarlífinu allt frá því að hún kom fram með Grafík árið 1986. Valdimar er ein skærasta stjarna ungu kynslóðarinnar og hefur hljómsveit hans, Valdimar, náð miklum vinsældum. Þau munu syngja gamalkunnug lög sín, syngja önnur í fyrsta sinn, sitja fyrir svörum og taka þátt í hverjum þeim fíflagangi sem stjórnendur þáttarins bjóða þeim upp á.
Þá mun Hannes Örn Blandon bregða sér í hlutverk Matta Sjokk og syngja um lífið í sveitinni, vel studdur af hljómsveit þáttarins undir stjórn Hjörleifs Arnar Jónssonar. Í lok þáttar kemur leynigestur í heimsókn og er hægt að lofa því að húsið muni nötra af söng og gleði. Eins og áður er þátturinn sendur út frá menningarhúsinu Hofi á Akureyri og eru áhorfendur velkomnir í salinn. Að vanda kostar ekkert inn. Útsendingin hefst kl. 12.45 á sunnudaginn og stendur í rúma 2 klukkutíma. Í hljómsveitinni eru auk Hjörleifs Arnar Jónssonar þeir Pétur Ingólfsson, Hallgrímur Ingvarsson, Risto Laur og Lára Sóley Jóhannsdóttir. Stjórnendur og veislustjórar eru Margrét Blöndal og Felix Bergsson
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







