Geðröskun hrjáir dýraníðing

Mjög alvarleg geðröskun hrjáir þann sem ráðist hefur með eggvopni á hryssur undanfarna mánuði. Níðingurinn hættir mögulega ekki fyrr en hann er gómaður, segir geðlæknir.

12. maí var tilkynnt um dýraníð í Fossgerði rétt utan Egilsstaða, þegar djúpir skurðir fundust á innri og ytri kynfærum hryssu. Síðan þá hafa samskonar níðingsverk uppgötvast víða um land, að því er virðist með mánaðar millibili í hvert sinn. Í júní var tilkynnt um þrjú hross sem skorin hefðu verið með eggvopni í snoppu og kynfæri í Skagafirði. Í júlí var ráðist á tvær hryssur í Kjós og aftur í september. Nú í október réðist níðingurinn til atlögu í Kópavogi, þar sem hann skar í kynfæri hryssu í hesthúsum að Kjóavöllum. Að minnsta kosti ein hryssanna þurfti aðhlynningu á dýraspítala dögum saman vegna djúpra og sýktra skurða á kynfærum.

Erfitt er að slá föstu hvað liggur að baki níðinu, segir Högni Óskarsson geðlæknir. „En það er ljóst að það er geðröskun að baki sem er alvarleg, mjög alvarleg. Hún er alvarleg fyrst og fremst því birtingarmyndin er svo alvarleg, þetta er sadismi með kynferðislegu ívafi, og eyðileggingu,“ segir Högni. „Þetta er níðingsverk, ótrúlega ofbeldisfullt og grimmt, gert í laumi og veitast að varnarlausum dýrum, í rauninni.“ 

Óvíst er hvort níðingurinn muni hætta ofbeldinu af sjálfsdáðum, að mati Högna. „Það er engan veginn víst, sumir hætta þegar þeir telja að sér þrengt eða stofna sér í hættu, fyrir öðrum er þetta árátta sem hættir ekki fyrr en þeir eru gómaðir.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka