Gary Martin mun vera á förum frá ÍA
Fyrst birt: 16.07.2012 22:52, Síðast uppfært: 16.07.2012 22:55

Gary Martin, leikmaður ÍA, mun vera á leið frá félaginu - Mynd: Eva Björk
Gary Martin, leikmaður úrvalsdeildarliðs ÍA í knattspyrnu, mun vera á leið frá félaginu til KR.
Fram kemur á vefsíðunni Fótbolti.net að mál Martin muni líklega skýrast í kvöld en hann sé að öllum líkindum á leið í Vesturbæinn. Þá segir einnig að Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA, hafi ekki viljað gefa upp ástæður þess að Martin væri á förum en mögulegt væri að ÍA fengi leikmann frá KR í hans stað.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













