Garryowen boðinn upp

Garryowen, lítill en sögufrægur bær í Montana, verður seldur á uppboði Williams and Williams í næstu viku. Garryowen er um þrír hektarar, og íbúarnir aðeins tveir. Eigi að síður eru þar ýmsar þjónustumiðstöðvar; svo sem nýlenduvöruverslun, skyndibitastaður og pósthús, auk íbúðarhúsa.
Garryowen er aðeins steinsnar frá Little Big Horn þar sem indíánar gjörsigruðu sveitir Georges Armstrongs Custers hershöfðingja í miklum hildarleik 1876. Þeirri orrustu eru gerð góð skil í kvikmyndinni Little Big Man þar sem Dustin Hoffman fer með aðalhlutverkið. Auk bæjarins mun uppboðshaldarinn reyna að selja handrit og aðra gripi sem ekkja Custers lét eftir sig á sínum tíma. Lágmarksboð fyrir bæinn er 250 þúsund dollarar, sama upphæð fyrir handritin. Í apríl bauð Williams and Williams upp bæinn Buford í Wyoming. Síðasti íbúinn, Don Sammons, roskinn maður, var á förum. Buford var sleginn tveimur Víetnömum fyrir 900 þúsund dollara.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












