Gæti fengið langan dóm

Efnin fundust í farangri konu á flugvellinum í Ríó. Mynd: AFP.


  • Prenta
  • Senda frétt

Íslendingur sem var handtekinn í Rio de Janeiro vegna smygls á 46.000 e-töflum gæti átt yfir höfði sér margra ára fangelsi verði hann fundinn sekur. Magnið var um fjórðungur þess sem tollayfirvöld í Brasilíu lögðu hald á allt árið í fyrra.

Maðurinn, sem er 47 ára gamall, var handtekinn á mánudagskvöld eftir að efnin fundust í farangri ungrar konu á flugvellinum í Ríó.

Brasilískum fjölmiðlum ber ekki alveg saman um atburðarrásina en svo virðist sem konan, sem var handtekin á flugvellinum við komuna frá Lissabon, hafi vísað á Íslendinginn og Brasilíumann sem handteknir voru í kjölfarið.

Svo virðist sem Íslendingurinn hafi jafnvel komið með konunni frá Portúgal en sloppið í gegnum tollinn.  Á síðustu árum hefur innflutningur á verksmiðjuframleiddum fíkniefnum frá Evrópu til Brasilíu aukist gríðarlega.

Í fyrra lögðu tollayfirvöld samtals hald á tæplega 200.000 e-pillur við landamæri Brasilíu og á flugvöllum þar í landi. Efnin sem fundust á mánudag eru því um fjórðungur alls þess sem haldlagt var í fyrra. Þetta er jafnframt mesta magn sem tollayfirvöld hafa lagt hald á í einu.

Það næstmesta voru 16.000 e-pillur árið 2010. Ekki er ljóst hver refsingin kann að vera verði maðurinn fundinn sekur en Íslendingur sem handtekinn var fyrir að smygla 12 kílóum af hassi til Brasilíu árið 2006 fékk sex ára fangelsisdóm þar í landi.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku