Gæti beðið lengi eftir afplánun

Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, gæti þurft að bíða lengi eftir að hefja afplánun fangelsisdóms fyrir innherjasvik.
Baldur var dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar í Hæstarétti í síðustu viku. Sýnt þótti að hann hefði búið yfir innherjaupplýsingum vegna starfa sinna í fjármálaráðuneytinu þegar hann seldi hlutabréf sín í Landsbankanum.
Fangelsismálastofnun upplýsir ekki um hvenær einstaklingar eru kallaðir inn til afplánunar. Almenna reglan er þó sú að sakfelldir menn fá sent bréf frá stofnuninni um að gefa sig fram eins fljótt og auðið er eftir að dómur fellur. Við núverandi aðstæður, þar sem fangelsi eru þétt setin, getur þó liðið langur tími áður en kemur að mönnum. Því er reynt að forgangsraða. Þá ræður nokkru dómalengd og hvers konar brot menn eru sakfelldir fyrir. Þannig er reynt að láta brotamann hefja afplánun við fyrsta tækifæri hafi hann fengið á sig margra ára dóm fyrir ofbeldisfullt brot. Einstaklingar með styttri dóma og þannig brot að minni hætta sé talin stafa af þeim geta því þurft að bíða lengur eftir að hefja afplánun.
Það getur líka haft áhrif á hvenær afplánun hefst hverjar óskir hins dæmda eru. Þannig hafa sumir óskað eftir því að hefja afplánun sem fyrst og er þá reynt að verða við því. Einnig reyna menn stundum að fá afplánun frestað og getur Fangelsismálastofnun reynt að taka tillit til þess ef málavextir þykja réttlæta slíkt. Þá getur til dæmis verið um að ræða alvarleg veikindi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

Baldur hlýtur dóm í Hæstarétti
Vonbrigði segir verjandi Baldurs





