Gæsluvarðhald ákveðið í fyrramálið

Búast má við því að farið verði fram á gæsluvarðhald í fyrramálið yfir manninum sem lögregla hefur í haldi vegna sprengju sem var sprengd á Hverfisgötu í lok síðasta mánaðar. Tveir aðrir menn voru handteknir í dag en sleppt seinnipartinn að lokinni yfirheyrslu.

Lögregla fann rafeindakveikibúnað heima hjá áttræðum karlmanni sem handtekinn var upp úr hádeginu í dag. Búnaðurinn er sambærilegur því sem fannst á leifum sprengju sem sprengd var á Hverfisgötu í lok síðasta mánaðar, skammt frá stjórnarráðinu. Bensín var notað sem sprengiefni en rafeindabúanaður til að sprengja. Bíll mannsins er í vörslu lögreglunnar, en hann er sömu gerðar og lýst hefur verið eftir.

Þrátt fyrir að hætta hafi skapast varð hvorki varð tjón á mönnum né munum þegar bensínasprengjan sprakk snemma að morgni 31. janúar, neðarlega á Hverfisgötu í Reykjavík. Samkvæmt yfirlýsingu lögreglu í kjölfarið hefur nokkra þekkingu þurft til að búa til sprengjuna og málið er litið mjög alvarlegum augum. Tvær klukkustundir liðu frá því vitni að sprengingunni hringdi í lögreglu þangað til svæðinu var lokað. Eftir frumathugun á vettvangi var rannsökuðu sprengusérfræðingar lögreglu og Landhelgisgæslunnar leifarnar og einnig var notast við sérhæft sprenguleitarvélmenni. Eftir að hafa skoðað myndir úr öryggismyndavél og yfirheyrt vitni bárust böndin að þybbnum manni á hvítum sendiferðabíl. Málið hefur verið í rannsókn síðan fjölmargir yfirheyrðir síðustu daga en lögregla hefur lagt mikið kapp á rannsókna.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku