Fyrstu tveir báðir frá Kentucky
Fyrst birt: 29.06.2012 15:04, Síðast uppfært: 29.06.2012 15:37
Flokkar: Körfubolti, Íþróttir

Anthony Davis var valinn fyrstur í nýliðavali NBA deildarinnar.
Nýliðaval NBA körfuboltadeildarinnar í Bandaríkjunum fór fram í nótt. Í fyrsta sinn í sögu deildarinnar voru fyrstu tveir leikmennirnir sem voru valdir úr sama háskólanum.
Anthony Davis var valinn fyrstur til New Orleans Hornets. Charlotte Bobcats átti svo annað val og valdi Michael Kidd-Gilchrist sem kemur einnig úr Kentucky háskólanum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













