Prenta frétt

Senda frétt

Fyrstu farfuglarnir komnir

Fyrstu farfuglarnir eru komnir til landsins á Höfn í Hornafirði. Þetta eru átta álftir sem fuglaáhugamenn á Höfn sáu koma inn yfir landið síðdegis á þriðjudag.

Talið er að þessir fuglar hafi þreytt flugið yfir Atlantshafið frá vetrarstöðvum sínum á Írlandi eða Skotlandi. Fleiri tegunda er að vænta næstu daga með hækkandi sól, en sílamáfurinn hefur oftast verið einn fyrsti vorboðinn. Þá má búast við að snemmorpnar tegundir eins og starinn fari að hefja varp.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

29. júlí 2010

Streymiþjónusta