Fyrsta tap ÍBV síðan í maí

Nichlas Rohde.
Breiðablik vann ÍBV 1-0 í úrvalsdeild karla í knattspyrnu í kvöld. ÍBV tapaði síðast í deildinni gegn Keflavík 24. maí og hafði fram að leiknum í kvöld unnið 6 deildarleiki í röð.
Nichlas Rohde, tvítugur danskur framherji skoraði mark Breiðabliks á 35. mínútu. Þetta var fyrsti leikur Rhode fyrir Breiðablik þar sem hann er í láni frá Nordsjælland í Danmörku.
Þetta var fyrsti sigur Breiðabliks í deildinni frá sigurleiknum gegn KR 20. júní en síðan hefur liðið gert þrjú jafntefli og tapað einum leik.
Breiðablik er í 6. sæti með 19 stig, einu stigi á eftir ÍBV sem er í 4. sæti.
Tveir leikir standa nú yfir í deildinni.
Selfoss-Valur
Fylkir-Stjarnan
13. umferð lýkur á morgun með þremur leikjum.
Keflavík-Grindavík
Fram-FH
KR-ÍA
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












