Fyrsta stóra lægð haustsins

Flokkar: Innlent, Veður


  • Prenta
  • Senda frétt

Fyrsta stóra lægð haustsins er komin upp að landinu og hefur verið gefin út stormviðvörun fyrir landið allt. Veðrið kemur fyrst inn yfir landið á því norðvestanverðu og er mest farið að hvessa við Breiðafjörð og á Vestfjörðum.

Vindur var tuttugu metrar á sekúndu á Klettshálsi á sunnanverðum Vestfjörðum og 23 metrar á sekúndu við Bláfeld á Snæfellsnesi. Þar mældust einmitt mestu hviðurnar það sem af er degi, 32 metrar á sekúndu. Einnig er farið að rigna með norðurströndinni og kólna á heiðum.

Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að hér sé um að ræða fyrstu lægð haustins sem veldur hvassviðri og stormi um allt land. „Það er lægð sem er komin hér við suðaustur- og austurströndina. Hún veldur norðan hvassviðri og stormi, og nokkuð langvarandi stormi meira að segja.“

Veðrið magnast og gengur suður yfir landið í kvöld og í nótt. Það færist svo austur en verður ekki yfirstaðið á austurhluta landsins fyrr en á þriðjudag.

Helga Björk Pálsdóttir, verkefnastjóri hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, brýnir fyrir fólki að hafa varann á. „Það er náttúrulega fyrst og fremst að taka alla lausamuni úr görðum eða sínu nánasta nágrenni og taka þá inn eða festa þannig að það fjúki ekki, fari ekki af stað.“ Hún bendir fólki einnig á að vera ekki á ferð ef það þarf þess ekki þegar líða fer á kvöldið og nóttina og sérstaklega ekki við fjöll og uppi á hálendi þar sem er útlit fyrir versta veðrið.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku