Hugmynd fyrir Landmælingar ?



  • Prenta
  • Senda frétt

Frumbyggjar Ástralíu skráðu upplýsingar um leiðir og staði í söngvum og hefur fyrirbærið verið kallað "sönglínur". En sönglínurnar eru ekki bara skrásetning. Segja má að þær séu heill hugmyndaheimur, forfeður koma við sögu sem og atburðir, svo aðferðin myndi tæpast eiga við hjá Landmælingum Íslands.

Í þættinum er sagt frá sönglínum frumbyggjanna, hugmyndum þeirra um uppruna sinn og tengslum við landið.  Rætt við Svein Eggertsson lektor í mannfræði við Háskóla Íslands.  Einnig rætt við Gísla Sigurðsson rannsóknaprófessor við Stofnun Árna Magnússonar, en hann finnur ýmis líkindi með sönglínum Ástralanna og fornsögunum okkar í því hvernig staðir og leiðir fá aukið vægi með skrásetningu sagna og nefnir í því sambandi nútímalegt fyrirbæri:  menningartengda ferðaþjónustu. 

Fyrr og nú  þriðjudag 26. júní 2012 kl. 13.00

Umsjón:
Hanna G. Sigurðardóttir
hanangs@ruv.is

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku