Egill sem sýndarvera ?

Hannes Högni Vilhjálmsson tölvunarfræðingur viðrar þá hugmynd sína að láta persónur Íslendingasagna vakna til lífsins í sýndarumhverfi, í þættinum Fyrr og nú á Rás 1 þriðjudag 21.febr. þegar tölvur eru enn til umfjöllunar. Möguleikar þeirra nú um stundir, þróunarverkefni ýmis og framtíðarpælingar.
Rætt er um sýndarveruleika, gervigreind, og spáð í máltækni, þ.e. þá tölvutækni með aðstoð málvísindanna sem miðar að því að kenna tölvunum tungumál, í þessu tilviki íslensku. Sagt frá hvernig félagsfræðirannsóknir eru nýttar til að þróa tölvutæknina.
Við sögu koma spurningar eins og: Er tjáningarmáti Ítala og Íslendinga svipaður, skilur mannfólkið áramótaskaupið eitthvað betur en tölvur, og er stutt í að eldhúsið þitt hringi í þig... ?
Viðmælendur:
- Hannes Högni Vilhjálmsson, dósent við tölvunarfræðideild HR
- Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor í íslenskri málfræði við HÍ
Fyrr og nú þriðjudag 21. febrúar 2012 kl. 13
Umsjón:
Hanna G. Sigurðardóttir
hannags@ruv.is
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







