Fylgið ekki fast í hendi



  • Prenta
  • Senda frétt

Nærri helmingur kjósenda útilokar ekki að styðja annan frambjóðanda í forsetakosningunum en þann sem hann nefnir í nýrri fylgiskönnun. Ari Trausti Guðmundsson er oftast nefndur sem næst besti kosturinn í kosningunum.

Samkvæmt nýrri könnun Gallup á fylgi við forsetaframbjóðendur hefur Ólafur Ragnar Grímsson 44,8% fylgi, Þóra Arnórsdóttir er með 37%, Ari Trausti Guðmundsson með 10,5%, Herdís Þorgeirsdóttir með 5,3%, Andrea J. Ólafsdóttir með 1,6% og Hannes Bjarnason með 0,8%.

Meira en helmingur svarenda, 57% prósent, sagði öruggt að stuðningur við frambjóðanda myndi haldast fram að kosningum, 27% töldu það mjög líklegt en 17% sögðu það líklegt. Talsvert af fylginu virðist því geta hreyfst fram að kosningum og þess vegna kannaði Capacent líka hvaða frambjóðanda kjósendur töldu næstbesta kostinn. 36% kjósenda töldu Ara Trausta næst besta kostinn, 23% nefndu Herdísi, 14% Ólaf Ragnar en 13% Þóru.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku