Frávísunarkröfu í Vafningsmáli hafnað

Úr Héraðsdómi í dag.


  • Prenta
  • Senda frétt

Frávísunarkröfu í Vafningsmálinu var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Verjendur Lárusar Weldings, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, og Guðmundar Hjaltasonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs bankans, kröfðust þess að málinu væri vísað vegna meints hagsmunaárekstrar.

Tveir fyrrverandi starfsmenn embættisins hafa verið kærðir fyrir brot á þagnarskyldu fyrir að hafa unnið fyrir þrotabú Milestones á sama tíma og þeirr unnu að rannsókn hjá sérstökum saksóknara á Vafningsmálinu. Lárusi og Guðmundi hefur verið gert að sök að hafa stefnt gamla Glitni í stórfellda hættu með vafasömum lánveitingum nokkrum mánuðum fyrir hrun. Ekki er hægt að kæra  úrskurðinn til Hæstaréttar. Dómari ræðir við lögmenn síðar í vikunni en aðalmeðferð verður á næstu vikum. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku