Franska konan fundin

Flokkar: Innlent


  • Prenta
  • Senda frétt

Björgunarsveitarmaður fann franska konu sem datt í klettum í fjallgöngu við Geitfell í kvöld. Svæðið er erfitt yfirferðar og tók það björgunarsveitarmanninn klukkutíma að komast að konunni. Hún var með síma og hafði verið í sambandi við björgunarfólkið.

Þegar konan hringdi á hjálp sagðist hún hafa meiðst á höfði en ekki er vitað hvað hún er slösuð mikið. Þyrlan sótti konuna og verður farið með hana á sjúkrahús í Reykjavík.

Lögreglumenn og björgunarsveitarmenn hafa sótt konu sem brotnaði á hægri ökkla við göngu í Brynjudal seinni partinn í dag. Búið er að koma konunni í sjúkrabíl og verður farið með hana á sjúkrahús.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku