Framsýn fagnar flugi til Húsavíkur

Mynd úr safni: Flugvöllurinn við Húsavík.

Framsýn, stéttarfélag í Þingeyjarsýslum, fagnar því að Flugfélagið Ernir hafi ákveðið að hefja áætlunarflug frá Reykjavík til Húsavíkur í vor.

Öflug ferðaþjónusta og fyrirhuguð uppbygging á orkufrekum iðnaði í Þingeyjarsýslum kalli á góðar samgöngur til og frá svæðinu, ekki síst í lofti. Fyrirhuguðu flugi til Aðaldalsflugvallar fylgi auk þess bæði tíma- og fjárhagslegur sparnaður á ferðalögum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku