Fram vann mótið á Seltjarnarnesi

Fram vann mótið á Seltjarnarnesinu - Mynd: Eyjólfur Garðarsson
Karlalið Fram í handknattleik fagnaði sigri á fjögurra liða æfingamóti sem lauk í dag í íþróttahúsi Gróttu á Seltjarnarnesi en liðið vann alla þrjá leiki sína á mótinu
Framarar sigruðu FH 29-27 í síðasta leik liðanna á mótinu í dag en FH-ingar höfðu eins marks forystu í hálfleik 13-12. Jóhann Gunnar Einarsson skoraði tólf mörk fyrir Fram í leiknum og Haraldur Þorvarðarson gerði fimm mörk en Ari Þorgeirsson var markahæstur FH-inga með sjö mörk og Andri Berg Haraldsson skoraði fimm mörk.
Þá hafnaði Afturelding í þriðja sæti mótsins eftir sigur á Gróttu 30-29 í lokaleik liðanna. Árni Benedikt Árnason, Jóhann Gísli Jóhannesson og Vilhjálmur Geir Hauksson skoruðu allir fimm mörk fyrir Gróttu en Helgi Héðinsson gerði átta mörk fyrir Aftureldingu og Sverrir Hermannsson fimm mörk.
Sigurður Þorsteinsson leikmaður Fram var svo valinn maður mótsins.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














