Frakkar og Rússar í undanúrslit EM
Frakkar og Rússar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Evrópumóts karla-landsliða í körfuknattleik í Litháen. Frakkar sigruðu þá Grikki en Rússar lögðu Serba að velli.
Grikkir höfðu forystuna lengst af í viðureign sinni gegn Frökkum í 8-liða úrslitum í kvöld. Fyrir loka fjórðung leiksins voru Grikkir með þriggja stiga forystu, en þá hrökk franska vélin í gang, vann leikhlutann með 11 stiga mun og leikinn með átta stigum, 64-56. Tony Parker leikmaður San Antonio Spurs í NBA deildinni fór fyrir franska liðinu og var stigahæstur með 18 stig en hjá Grikkjum skoraði Ioannis Bourousis 17 stig.
Í hinni viðureign kvöldsins í 8-liða úrslitum EM sigruðu svo Rússar Serba með 10 stiga mun, 77:67 eftir að hafa haft undirtökin allan tímann. Andrei Kirilenko fór fyrir rússneska liðinu með 14 stig auk þess að taka 11 fráköst, en hjá Serbum var Milos Tedosic öflugur og skoraði 20 stig. Í undanúrslitunum verða það því Frakkar og Rússar sem mætast annars vegar og hins vegar Spánverjar og Makedóníumenn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







