Forsetinn á heimsþingi um höfin

Ólafur Ragnar Grímsson ásamt ritstjóra The Economist við setningarræðuna
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, flutti setningarræðu á heimsþingi um höfin, World Oceans Summit í Singapore í morgun. Vikuritið The Economist efnir til þingsins en að lokinni ræðunni sat forsetinn fyrir svörum ásamt ritstjóra blaðsins.
Á heimsþinginu verða m.a. málstofur um rannsóknir á höfunum, þróun sjálfbærs og arðbærs sjávarútvegs, alþjóðasamvinnu og valdsvið einstakra ríkja. Þá verður einnig rætt um reynsluna af Hafréttarsáttmálanum og þörfina á nýjum samningum um fiskistofna utan lögsögu ríkja, framtíð Norðurslóða og heimskautasvæða sem og áhrif loftslagbreytinga.
Í setningarræðu sinni fjallaði forsetinn um nauðsyn þess að efla rannsóknir á höfunum og auðlindum þeirra, rakti reynslu Íslendinga og skipulagningu veiða á grundvelli vísindalegra rannsókna.
Þáttakendur í ráðstefnunni eru einkum frá Evrópu, Asíu og Ameríku en þingið sækja um 200 sérfræðingar í haffræði og sjávarútvegi.
Bankastjóri Alþjóðabankans, Robert Zoellick, verður aðalræðumaður á heimsþinginu en Alþjóðabankinn sinnir aðallega hagsæld og efnahagslífi í þróunarlöndunum, segir í tilkynningu frá forsætisembættinu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







