Forsetahjónin safna nammi með söng

Ólafur Rangar og Dorrit voru klædd í sitt fínasta púss. Mynd: Snæfríður Ingadóttir.
Forsetahjónin voru á ferðalagi á Akureyri í dag. Gengu þau uppáklædd á milli verslana og fyrirtækja, sungu og söfnuðu sælgæti. Að sögn forsetans voru þau að safna nammi fyrir veislu á Bessastöðum og hafði þeim orðið nokkuð ágengt.
Doritt var glerfín að vanda íklædd dökkum pels, með bleikt gloss og demanta um hálsinn. Að sjálfsögðu sungu hjónin eingöngu þjóðleg lög og þá helst „Öxar við ána“.
Ef myndin af forsetahjónunum er skoðuð gaumgæfilega kemur í ljós að þarna voru börn á ferð sem höfðu búið sig svona skemmtilega í tilefni öskudagsins. Það er dálítið misjaftn hvernig þessum degi er fagnað en sá norðlenski siður að syngja fyrir kaupmenn og þiggja sælgæti að launum er orðinn útbreiddur. Þannig voru fjölmargir krakkar á ferð í Kringlunni í morgun. Sum sögðust búin að safna svo miklu sælgæti að það myndi líklega endast þeim fram að næsta öskudegi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

Börnin syngja á Öskudaginn





