Foreldrar ósáttir við sameiningu

Fyrirhuguð sameining unglingastigs þriggja skóla í Grafarvogi leggst illa í hóp foreldra og vilja þeir opinn fund með ráðamönnum. Þeirri beiðni hefur verið hafnað. Talsmaður foreldra segist undrandi á svörum borgarfulltrúa.

Hópur foreldra barna í Grafarvogi, er ósáttur við áform borgaryfirvalda um að unglingadeildir þriggja skóla í hverfinu verði sameinaðar. Áætlað er að unglingadeildir Hamra- og Húsaskóla færast yfir í Foldaskóla næsta haust. Foreldrarnir segja breytinguna ekki nægilega ígrundaða. Hún feli í sér aukna umferð við Foldaskóla sem götur þar ráði ekki við. Þá sé starf skólanna ólíkt.
Árni Guðmundsson, faðir tveggja barna í Hamraskóla og talsmaður foreldra, segir mörgum spurningum foreldra enn ósvarað. 

„Okkur finnst mörg önnur svör sem við höfum beðið eftir varðandi þessa sameiningu vera, eða við höfum ekki fengið þau svör og allt ferlið það stutt á  veg komið að við eiginlega skiljum ekki þennan asa sem virðist vera í forráðamönnum verkefnisins að keyra þetta í gegn með þessum hætti,“ sagði Árni í viðtali við fréttastofu RÚV.

Fyrirhugaðar breytingar voru fyrst kynntar fyrir um ári. Talsmenn foreldra óskuðu nýverið eftir opnum fundi með Oddnýju Sturludóttur, formanni skóla- og frístundaráðs borgarinnar, vegna málsins. Í svarbréfi segir að ekki sé talin þörf á slíkum fundi. Stýrihópur um breytingarnar hafi þegar kynnt áformin fyrir foreldrum. Þá hafi verk- og tímaáætlun verið framfylgt.

„Ég er bara alveg undrandi og við öll sem að þessu stöndum og að kjörnir fulltrúar skuli neita að mæta okkur á opnum fundi og útskýra það sem að í okkar huga hlýtur að vera úthugsað verkefni. það er bara óskiljanlegt og ég á engin svör til að mæta því,“ sagði Árni að lokuml.

Foreldrar hafa nú frestað opna fundinum til fimmtudagsins í næstu viku og vonast til ráðmenn mæti.




 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku