Flutningar yfir Múlakvísl hafnir

Flutningar yfir nýtt vað yfir Múlakvísl eru hafnir. Fyrsta rútuferðin var farin án farþega, austur yfir kvíslina til að kanna vaðið. Vegagerðin er nú byrjuð að flytja bæði fólk og bíla yfir vaðið með aðstoð hjálparsveita.

Björgunarsveitir munu skipuleggja ferðirnar yfir kvíslina en Vegagerðin sér um vaðið og heldur því við. Vegagerðin ber kostnaðinn af þessum flutningi, sem verður almenningi að kostnaðarlausu.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að báðir brúarvinnuflokkar Vegagerðarinnar komi á staðinn í dag með lið sitt og búnað. Að auki er verið að bæta í vegina bæði á Fjallabaksleið nyrðri og Dómadalsleið.
Stjórnvöld hafa heimilað Vegagerðinni að flytja fólk yfir vað á Múlakvísl á vörubifreið eða sérútbúinni rútu og einnig að flytja bíla yfir með vörubifreiðum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku