Flugeldur tendraði bálið-myndskeið

Sekúndubroti eftir að þessi mynd er tekin kviknaði í brennunni með miklum hvelli. Sjá nánar í myndskeiðinu sem fylgir fréttinni. Mynd: Sighvatur Jónsson
Kveikt var í brennunni á Fjósakletti í Herjólfsdal á föstudagskvöld með tilþrifum. Blys var látið svífa ofan úr miðju Dalfjalli. Þegar blysið snerti bálköstinn sprungu flugeldar sem þar hafði verið komið fyrir. Myndskeið af þessari einstöku brennutendrun fylgir fréttinni.
Meðal dagskrárliða hátíðarinnar í gærkvöldi var frumflutningur Þjóðhátíðarlagsins á brekkusviðinu. Fjallabræður, Lúðrasveit Vestmannaeyja og Sverrir Bergmann fluttu lag Halldórs Gunnars Pálssonar og texta Magnúsar Þórs Sigmundssonar við miklar undirtektir gesta í brekkunni.
Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá upptöku af frumflutningi lagsins ásamt myndum sem Sighvatur Jónsson tók af brennunni og öðru sem fyrir augu bar í Herjólfsdal í gær.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














