Flóttamenn sluppu í land
Fyrst birt: 20.02.2012 13:44, Síðast uppfært: 20.02.2012 13:46

Ítalska lögreglan hefur í dag handtekið um það bil þrjátíu erlenda flóttamenn sem komust á land skammt frá bænum Portigliola í Kalabríuhéraði, syðst á Ítalíu.
Flóttamennirnir komu siglandi með vöruflutningaskipi og þegar skipið var skammt frá landi skutu þeir út tveimur björgunarbátum og héldu til lands. Allir eru flóttamennirnir ungir að árum. Verið er að yfirheyra þá um þjóðerni þeirra og ferðir.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













