Flóttamannastraumurinn eykst



  • Prenta
  • Senda frétt

Fjöldi flóttamanna frá Sýrlandi eykst stöðugt en meira en 150 þúsund eru taldir hafa flúið land. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna býr sig undir það versta dragist átökin í Sýrlandi á langinn.

Vikum saman hefur verið stöðugur straumur flóttamanna yfir landamæri Sýrlands til Tyrklands en umferðin hefur aldrei verið eins mikil og nú. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna segir hundruð eða jafnvel þúsundir flýja átökin þar til nágrannaríkjanna á hverjum degi.

Um 150 þúsund sýrlenskir flóttamenn frá hafa nú skráð sig hjá stofnuninni, en ljóst að margir eru óskráðir. Líklega er fjöldi þeirra sem hefur flúið frá Sýrlandi kominn í 250 þúsund manns.

Sameinuðu þjóðirnar búast við erfiðum vetri haldi átökin í Sýrlandi áfram. Í flóttamannabúðum í Zaatari í Jórdaníu eru menn í óða önn að safna vistum, enda er óttast að fjöldi flóttamanna aukist mikið á næstunni.

Flutningavél á vegum franska hersins lenti í gær í Jórdaníu með 20 tonn af lyfjum og hjúkrunargögnum, og franskir herlæknar settu upp bráðabirgðasjúkrahús við búðirnar. Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Kanada, Evrópusambandinu og víðar hafa undanfarna daga og vikur heitið nágrannalöndum Sýrlands mörgum milljörðum íslenskra króna í neyðaraðstoð vegna flóttamannastraumsins.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku