Fleiri mynda af Katrínu að vænta
Fyrst birt: 15.09.2012 03:29, Síðast uppfært: 15.09.2012 03:29
Flokkar: Erlent

Ítalska vikuritið Chi tilkynnti í gærkvöld að á mánudag komi út aukablað þar sem 26 blaðsíður verði lagðar undir myndir af Katrínu, hertogaynju af Cambridge, berbrjósta.
Katrín og eiginmaður hennar, Vilhjálmur Bretaprins, kærðu í gær franska vikuritið Closer eftir að það birti nokkrar myndir af þeim. Ritstjórinn sagði að fleiri myndir væru til. Myndirnar voru teknar þegar þau hjón voru í sumarfríi í Frakklandi. Vikuritið er kært fyrir að brjóta gegn friðhelgi einkalífsins. Bæði vikuritin eru í eigu sama manns, Silvio Berlusconi fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













