Fjórði tapleikur Sundsvall í röð
Fyrst birt: 27.01.2012 21:43 GMT, Síðast uppfært: 27.01.2012 21:43 GMT

Hlynur Bæringsson skoraði 18 stig og tók 10 fráköst fyrir Sundsvall í kvöld
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 28 stig fyrir Sundsvall Dragons sem tapaði naumlega fyrir Norrköping Dolphins 97-96 í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld en þetta var fjórði ósigur Sundsvall í röð.
Hlynur Bæringsson skoraði 18 stig fyrir Sundsvall í leiknum og tók 10 fráköst en Pavel Ermolinskij var sem fyrr fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







