Fjöldi auglýsinga verði takmarkaður

Lagt er til að fjöldi sjónvarpsauglýsinga verði takmarkaðar og tekjur af útvarpsgjaldi renni óskiptar til RÚV, í nýjum drögum að lögum um fjölmiðilinn. Opið samráðsferli um drögin hófst í dag.

Nefnd mennta- og menningarmálaráðherra um endurskoðun laga um Ríkisútvarpið hefur skilað af sér drögum að frumvarpi til laga um RÚV. Drögin fara nú í opið samráðsferli áður en ráðherra leggur endanlegt frumvarp fyrir Alþingi í byrjun mars.

Meðal helstu nýmæla í drögunum má nefna aukna áherslu á almannaþjónustuhlutverk Ríkisútvarpsins og hlutverki þess og skyldum lýst á ítarlegri hátt en í gildandi lögum. 

Þá á að takmarka sjónvarpsauglýsingar sem skerða munu tekjur RÚV um fimmtán prósent. Tekjur af útvarpsgjaldi eiga síðan að renna óskiptar til RÚV.

Þá eru lagðar til breytingar á skipan og fyrirkomulagi við val á stjórn RÚV. Auk þess er skýrar mælt fyrir um skil á milli verksviðs stjórnar og útvarpsstjóra en gert er í gildandi lögum. Þá er lögð til sérstök vernd í starfi fyrir starfsmenn fréttastofu og dagskrárgerðarmenn til að tryggja sjálfstæði þeirra í starfi. Málefnalegar ástæður þurfi ætíð að liggja að baki brottrekstri starfsmanns. Telji starfsmaður ástæður ekki málefnalegar á hann rétt á skriflegri skýringu.

Frumvarpið í heild sinni má finna á vefsíðu mennta- og menningarmálaráðuneytisins. En öllum er frjálst að skila athugsemdum sínum og ábendingum til ráðuneytisins.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent

Tilkynna um bilaða upptöku