Fimm þingmenn ráða framtíð stjórnarinnar



  • Prenta
  • Senda frétt

Framtíð ríkisstjórnarinnar getur ráðist á því hvaða ákvörðun fimm þingmenn taka á næstu dögum. Þrír þeirra eru fyrrverandi þingmenn Vinstri-grænna, einn gekk til liðs við Vinstri-græn á kjörtímabilinu og sá fimmti sagði skilið við Framsóknarflokkinn.

Samtöl fréttastofu við þingmenn og forystumenn flokkanna eftir að Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, lagði fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina gefa til kynna að 30 þingmenn segi að öllum líkindum nei við tillögunni, 28 segi líklega já og úrslitin ráðist á afstöðu fimm þingmanna sem ýmist hafa ekki gert upp hug sinn eða ekki hefur náðst í.

 

30 atkvæði líklega greidd gegn vantrausti

Gera má ráð fyrir að nær allir þingmenn stjórnarflokkanna greiði atkvæði gegn tillögunni. Þingmenn Samfylkingar eru nítján talsins og þingmenn Vinstri-grænna ellefu. Málið er þó ekki svo einfalt því Þráinn Bertelsson, sem starfar nú innan þingflokks Vinstri-grænna, sagðist í samtali við fréttastofu ekki hafa gert upp hug sinn. Hann hefur lagt mikla áherslu á að Alþingi breyti stjórnarskránni í samræmi við þá vinnu sem hefur verið í gangi á kjörtímabilinu og segist nú þurfa að meta þá stöðu sem komin er upp, hvort tveggja með tillögu um vantraust og um hverjar líkurnar eru á að stjórnarskrárbreytingarnar gangi í gegn.

Þar af leiðir að 29 af þingmönnum stjórnarflokkanna greiða væntanlega atkvæði gegn vantrausti. Óvissa ríkir um atkvæði eins.

Á móti kemur að Róbert Marshall, sem kosinn var á þing fyrir Samfylkinguna en sagði skilið við hana í fyrra, er nú erlendis. Hann kallaði inn varaþingmann sem tók sæti í dag og greiðir væntanlega atkvæði gegn vantrausti á þriðjudag, það er Samfylkingarkonan Anna Margrét Guðjónsdóttir. Því má gera ráð fyrir að stjórnin njóti stuðnings 30 þingmanna sem greiði atkvæði gegn vantrausti.

 

28 atkvæði líklega greidd með vantrausti

Formenn hvort tveggja Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa lýst því yfir að þeir styðji vantraust á ríkisstjórnina. Bjarni Benediktsson sagði í sjónvarpsfréttum að þingflokkur Sjálfstæðisflokks hefði ákveðið að greiða atkvæði með vantrausti. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði þingmenn Framsóknar styðja vantraust þó ekki hefði verið tekin formleg ákvörðun í þingflokknum enda hefði ekki gefist tími til að funda um málið. Sjálfstæðismenn eru sextán talsins á þingi og Framsóknarmenn níu. Þar með má telja víst að 25 þingmenn þeirra flokka greiði atkvæði með vantrausti.

Þrír þingmenn Hreyfingar greiða væntanlega atkvæði með tillögunni. Þór Saari bar hana fram og þó hvorki Margrét Tryggvadóttir né Birgitta Jónsdóttir hafi endanlega gert upp hug sinn er líklegra en ekki við núverandi aðstæður að þau greiði öll atkvæði með vantrausti. Þó verður að hafa í huga að Þór Saari sagði í samtali við fréttastofu að hann kynni að draga vantrauststillöguna til baka ef ríkisstjórnin setti fram raunhæfa áætlun um að klára stjórnarskrármálið fyrir þinglok. Að óbreyttu eru þó 26 og líklega 28 þingmenn sem greiða atkvæði með vantrausti. 

 

Vafaatkvæðin fimm

Úrslit atkvæðagreiðslunnar og líf ríkisstjórnarinnar ráðast því væntanlega af því hvernig fimm þingmenn greiða atkvæði á þriðjudag. Þrír þeirra voru kjörnir á þing fyrir Vinstri-græn en sögðu sig úr þingflokknum. Hvort tveggja Atli Gíslason og Jón Bjarnason sögðust ekkert hafa frétt af vantrauststillögunni þegar fréttastofa ræddi við þá. Báðir sögðust þurfa að taka sér nokkra daga til að gera upp hug sinn. Þriðji fyrrverandi þingmaður Vinstri-grænna er Lilja Mósesdóttir, nú formaður Samstöðu. Ekki hefur náðst í hana í kvöld.

Þessu til viðbótar ríkir óvissa um hvernig tveir þingmenn greiða atkvæði. Guðmundur Steingrímsson, sem kosinn var á þing fyrir Framsóknarflokkinn en er nú annar formanna Bjartrar framtíðar, segist þurfa að ræða við samherja sína áður en hann tekur afstöðu til vantrauststillögunnar. Og eins og áður er nefnt segist Þráinn Bertelsson ekki hafa gert upp hug sinn.

Alls eru þetta fimm atkvæði sem óvissa ríkir um og gætu ráðið úrslitum á þriðjudag.

 

Spennuþrungnir dagar framundan

Ljóst er af viðtölum við þingmenn að mikillar spennu er að vænta næstu daga. Bæði á eftir að koma í ljós hvernig fimmmenningarnir greiða atkvæði og eins hvort ríkisstjórnin reyni að koma til móts við þá þingmenn Hreyfingar og aðra sem vilja hvað lengst ganga í stjórnarskrármálum. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku