Fimm í aftursætinu
Fyrst birt: 26.06.2012 14:33, Síðast uppfært: 26.06.2012 15:57

Öryggisbelti. Mynd: Shutterstock.
Fimm farþegar sátu í aftursæti fólksbíls þegar lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði bílinn við hefðbundið eftirlit um helgina. Móðir sat með tveggja ára barn sitt í einu sæti og hafði bílbeltið spennt utan um þau bæði. Við hlið þeirra, fyrir miðju sat átta ára telpa, í belti sem ætlað er fullorðnum.
Við hennar hlið sátu svo átta ára drengur með annað tveggja ára barn í fanginu og var öryggisbeltið spennt um þau bæði. Segir lögreglan að alltof algengt sé að upp komi tilvik þar sem reglum um öryggi barna í bílum er ekki fylgt og eru foreldrar og forráðamenn minntir á að hafa þessa hluti í lagi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














