FH vann ÍBV í Eyjum

FH-konur lögðu ÍBV í Eyjum - Mynd: Eva Björk


  • Prenta
  • Senda frétt

Fjórir leikir voru á dagskrá þegar 11. umferð úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu lauk í kvöld.

FH sigraði ÍBV 3-0 í Vestmannaeyjum. Aldís Klara Lúðvíksdóttir kom FH yfir í fyrri hálfleik og Sarah McFadden skoraði svo tvívegis fyrir gestina úr Hafnafirðinum í síðari hálfleik.

Breiðablik lagði Aftureldingu 3-0 í Mosfellsbæ. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir skoraði fyrsta mark Blika eftir um hálftíma leik og Fanndís Friðriksdóttir bætti við öðru marki liðsins í upphafi síðari hálfleiks. Þórdís Hrönn innsiglaði svo 3-0 sigur Blika með öðru marki sínu í uppbótartíma.

Valur gerði góða ferð á Selfoss og vann 5-2 sigur á heimakonum. Elín Metta Jensen skoraði tvö mörk fyrir Val í fyrri hálfleik og Dóra María Lárusdóttir eitt mark. Þær stöllur bættu svo við sínu markinu hvor í síðari hálfleik áður en Katrín Ýr Friðgeirsdóttir og Eva Lind Elíasdóttir löguðu stöðuna lítillega fyrir heimakonur.

Þá vann Stjarnan 3-2 sigur á Fylki í Garðabæ. Anna Björg Björnsdóttir náði forystunni fyrir Fylki á 6. mínútu en Ashley Bares jafnaði metin um miðjan fyrri hálfleik. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir skoraði fyrir Stjörnuna úr vítaspyrnu á 64. mínútu en Anna Björg gerði sitt annað mark fyrir Fylki átta mínútum síðar og staðan jöfn 2-2. Harpa Þorsteinsdóttir tryggði Stjörnukonum svo öll stigin með marki átta mínútum fyrir leikslok.

Þór/KA er nú efst í deildinni með 28 stig en Stjarnan og Breiðablik hafa 23 stig, Valur og ÍBV koma næst með 19 stig, þá FH með 14 stig og Fylkir með 11 stig, Afturelding og Selfoss hafa 8 stig en KR vermir botninn með 3 stig.   

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku